Vestmannaeyjar-upplýsingasíða.

Vestmannaeyjar-upplýsingasíða.

Athugið

 

22. júl. 2008: Einsog sést er síðan ekki búinn að vera virk, enn það er vegna anna. En vonandi fer ég að sinna þessari síðu betur í framtíðinni.

4. maí 2009:  Er að breyta aðeins hérna. Enn ég er að hugsa um að gera meira enn bara setja hérna Eyjakörfuboltan.

Stefni á að opna "nýja" síðu 13. júní 2009 kl. 20:09. Enn þið getið fengið aðgang  með lykilorði þangað til.


4. sept. 2009: Ok. þá er að byrja að koma þessu af stað svona í rólegheitum.......

07.07.2010. Þá er að byrja fyrir alvöru með þessa síðu..........




09.05.2012
Athugið að síðan er ekki eins og hún á að vera. Einhverskonar hægri slagsíða er í gangi. T.d. er hliðarsláinn kominn hægrameginn þegar hún á vera vinstrameginn.
   

Flettingar í dag: 128
Gestir í dag: 55
Flettingar í gær: 501
Gestir í gær: 100
Samtals flettingar: 215680
Samtals gestir: 38533
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 07:59:33

17.05.2012 06:51

Ótitlað

Miðvikudaginn 16. maí kl. 15.10
Fréttatilkynning

Skóladagur GRV í Barnaskólahúsinu í dag

opið hús milli kl. 17 og 20

Skóladagur GRV í Barnaskólahúsinu í dag
Í dag miðvikudaginn 16. maí milli kl. 17 og 20 bjóðum við alla bæjarbúa velkomna í skólann okkar til að sjá hluta af því sem við erum að fást við alla daga. Stofur nemenda verða opnar gestum og gangandi. Þar eru hluti af verkefnum vetrarins til sýnis og gestir geta látið ljós sitt skína með því að taka þátt í alls konar verkefnum, þrautum og leikjum.
 
 
Meira

Miðvikudaginn 16. maí kl. 13.12
Magnús Gylfason um útlendingaumræðu í Pepsímörkum gærkvöldsins:

Kallast rasismi á vinnumarkaði

Kallast rasismi á vinnumarkaði
"Auðvitað vil ég ekki vera að æsa mig við vini mína í Pepsi-mörkunum en þessi umræða er á villigötum," sagði Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, í viðtali við Valtý Björn Valtýsson í Boltanum á X-inu 97,7.  Hann er þá að tala um þá gagnrýni sem ÍBV hefur legið undir fyrir að hafa verið með sjö útlendinga í byrjunarliði sínu gegn KR í gær.
Meira
Miðvikudaginn 16. maí kl. 12.19

Védís og Herdís halda þverflaututónleika í kvöld

- Frítt inn fyrir nemendur Tónlistarskólans

Védís og Herdís halda þverflaututónleika í kvöld
Þær Védís Guðmundsdóttir og Herdís Gunnarsdóttir munu halda þverflaututónleika í kvöld miðvikudaginn, 16. maí, í Safnaðar­heimili Landakirkju en tónleikarnir hefjast klukkan 19:30. Á tónleikunum munu þær flytja klassískt efni, bæði saman og í sín hvoru lagi, auk þess sem þær taka eitt lag með Ástu Maríu Harðardóttur en um undirleik sér Guðmundur H. Guðjónsson, faðir Védísar. Í síðari hluta tónleikanna koma þær svo m.a. fram með flautusveit Tónlist­ar­skólans.
Meira


Miðvikudaginn 16. maí kl. 11.52

Álfasteinninn kominn á sinn stað

- Árni Johnsen kominn með nýja nágranna sem hann flutti sjálfur til Eyja

Álfasteinninn kominn á sinn stað
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum, flutti Árni Johnsen álfastein til Eyja í gær, þriðjudag.  Steininn flutti hann ofan úr jaðri Svínahrauns en þar hafði hann komið auga á steininn og bjargað undan nýjum Suðurlandsvegi.  Árni fékk í lið með sér Ragnhildi Jónsdóttur, álfasérfræðing úr Álfagarðinum í Hafnarfirði, sem sá um flutninginn á álfunum á meðan Árni flutti steininn.
Meira
Miðvikudaginn 16. maí kl. 08.13

101. leikári Leikfélagsins að ljúka

101. leikári Leikfélagsins að ljúka
101. leikári Leikfélags Vestmannaeyja lýkur nú um helgina með lokasýningum af söngleiknum Banastuð og barnasýningunni Galdrakarlinn í Oz. Leikárið hefur gengið vel og mikil gróska verið í starfsemi félagsins. Nú fer á fullt undirbúningur sumarstarfsins en töluvert af verkefnum liggur fyrir hjá félaginu. Vill stjórn félagsins koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem lagt hafa hönd á plóg í starfi félagsins á leikárinu og eins til allra þeirra gesta sem sóttu leikhúsið.
Meira

16. maí kl.13:06 | fotbolti.net

Ræddi við dómarann í klefanum eftir leik

Kallast rasismi á vinnumarkaði

segir Magnús Gylfason þjálfari ÍBV

"Auðvitað vil ég ekki vera að æsa mig við vini mína í Pepsi-mörkunum en þessi umræða er á villigötum," sagði Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, í viðtali við Valtý Björn Valtýsson í Boltanum á X-inu 97,7.
 
Hann er þá að tala um þá gagnrýni sem ÍBV hefur legið undir fyrir að hafa verið með sjö útlendinga í byrjunarliði sínu gegn KR í gær.

Fréttir

16. maí kl.11:23 | eyjar.net

101. leikári Leikfélagsins að ljúka

16. maí kl.08:25 | eyjar.net

Hel-víti fyrir Eyjamenn

16. maí kl.07:39 | mbl.is

Nýjasta skipið selt úr landi?



Blogg
16. maí kl.16:31 | eyjar.net

Þrífst rasismi á Stöð 2 sport?

Sigursveinn Þórðarson

16.05.2012 17:25

Ótitlað

Magnús Gylfason ósáttur við umræðuna um fjölda útlendinga hjá ÍBV

Vísir Íslenski boltinn 16. maí 2012 16:00
Magnús Gylfason þjálfari ÍBV
Magnús Gylfason þjálfari ÍBV Daníel
Magnús Gylfason þjálfari ÍBV var í viðtali í dag í Boltanum á X-inu 977.
Þar ræddi Magnús um vítaspyrnurnar fjórar sem dæmdar voru í leiknum við KR
3-2 tapleik ÍBV í gær. Þá svaraði þjálfarinn einnig umfjöllun úr Pepsímörkunum í gær þar sem rætt var um fjölda útlendinga í liði ÍBV.

"Ég hefði dæmt tvær vítaspyrnur í þessum leik," sagði Magnús m.a. í viðtalinu
en hann fór þar yfir alla vítaspyrnudómana og hafði sterkar skoðanir á dómgæslu Magnúsar Þórissonar.

Tómas Ingi Tómasson sérfræðingur Stöðvar 2 sport gagnrýndi fjölda erlendra
leikmanna í liði ÍBV og Magnús hafði ýmislegt við þá gagnrýni að athuga.

16.05.2012 17:18

Ótitlað

mið 16.maí 2012 09:49 Hafliði Breiðfjörð, Twitter: @haflidib
Landsliðsmarkvörður frá Skotlandi í kvennalið ÍBV
Mynd: Eyjafréttir
Kvennalið ÍBV náði að styrkja sig með einum leikmanni áður en félagaskiptaglugginn hér á landi lokaði í gærkvöldi.

Félagið fékk þá félagaskipti fyrir skoska markvörðinn Khym Ramsay sem kemur Rangers í heimalandi sínu en hún hefur verið viðloðandi landslið þeirra Skota.

Hjá ÍBV mun hún berjast við Bryndísi Láru Hrafnelsdóttur um byrjunarliðsætið í markinu en hún kom til félgsins frá ÍBV í vetur. Birna Berg sem varði mark liðsins í fyrrasumar er frá út allt árið vegna meiðsla.

Ramsay er fimmti leikmaðurinn sem ÍBV fær í vetur. Auk Bryndísar eru það þær Andrea Ýr Gústavsdóttir frá Breiðabliki, Anna Þórunn Guðmundsdóttir frá Grindavík og Shaneka Gordon frá Grindavík.

Liðið hefur misst Birnu Berg, Þórhildi Ólafsdóttur til Þór/KA, Eddu Maríu Birgisdóttur í Stjörnuna, Kolbrúnu Ingu Stefánsdóttur sem er hætt og Melissa Cary.

Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://fotbolti.net/fullStory.php?id=126417#ixzz1v3Pp4qEb

16.05.2012 17:15

Ótitlað

Tryggvi tókst á við bakkus

Segist leikfær eftir tvær vikur
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:43 > 16. maí 2012
Tryggva vantar eitt einasta mark til að bæta gamalt markamet Inga Björns Albertssonar

Tryggva vantar eitt einasta mark til að bæta gamalt markamet Inga Björns Albertssonar

Knattspyrnumaðurinn Tryggvi Guðmundsson lætur illar tungur í þjóðfélaginu alls ekki hafa áhrif á sig enda segist hann ýmsu vanur. Tryggvi hefur glímt við blóðtappa í fæti um skeið og var nýlega tekinn ölvaður undir stýri í Vestmannaeyjum.

Tryggvi segist hafa gert stór mistök með ölvunarakstrinum fyrir skömmu en hafa tekið afleiðingum þess og um það sé ekkert meira að segja. Í samtali við Stöð 2 Sport segist hann hafa mun meiri áhyggjur af blóðtappa þeim er haldið hefur honum frá fyrstu umferðum Pepsi deildar karla þetta vorið. Hann er þó vongóður um að ná nægum bata á næstu tveimur vikum til að geta á ný farið að spila með ÍBV og veitir sennilega ekki af því lið hans er í næstneðsta sæti í Pepsi deild karla eftir þrjár umferðir með eitt stig.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


16.05.2012 16:57

Ótitlað

mið 16.maí 2012 12:04 Elvar Geir Magnússon, Twitter: @elvargeir
Maggi Gylfa: Kallast rasismi á vinnumarkaði
Úr leik KR og ÍBV í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
`
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
- Ræddi við dómarann í klefanum eftir leik
"Auðvitað vil ég ekki vera að æsa mig við vini mína í Pepsi-mörkunum en þessi umræða er á villigötum," sagði Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, í viðtali við Valtý Björn Valtýsson í Boltanum á X-inu 97,7.

Hann er þá að tala um þá gagnrýni sem ÍBV hefur legið undir fyrir að hafa verið með sjö útlendinga í byrjunarliði sínu gegn KR í gær.

"Við eigum að hætta að pæla í því hvers lenskir mennirnir eru. Þetta er bannað á vinnumarkaði, það kallast rasismi. Auðvitað viljum við sjá að lið hafi blöndu af heimamönnum og uppöldum og allt þannig."

"Rétt er að sjö menn voru inn á með útlensk nöfn en þar af eru Matt Garner og Ian Jeffs sem hafa verið hérna í hátt í tíu ár. Eigum við ekki frekar að flokka þetta undir heimamenn og aðkomumenn?"


"Þá get ég talið upp fyrir þig: Andri Ólafsson, Þórarinn Ingi Valdimarsson og Tryggvi Guðmundsson voru meiddir. Þetta eru byrjunarliðsmenn. Víðir Þorvarðarson byrjaði inn á, Arnór Eyvar, Gauti Þorvarðar, Guðjón Orri, Bjarki og Yngvi voru á bekknum. Þarna eru níu uppaldir heimamenn. Bendið mér á önnur lið í deildinni sem hafa níu uppalda heimamenn. KR var með 2-3 í byrjunarliðinu í gær."

Magnús sagði að í sínum huga væri skiptingin hjá liðinu í mjög góðu jafnvægi en ÍBV hefur meðal annars fengið til sín erlenda leikmenn til að fylla upp í skörð meiddra lykilmanna liðsins.

Í viðtalinu var einnig rætt um vítaspyrnudómana í leiknum á KR-vellinum í gær en sérstaklega var Magnús Gylfason ósáttur við annan vítaspyrnudóminn sem KR fékk. Hann fór og ræddi við nafna sinn Þórisson sem dæmdi leikinn í gær.

"Það er nýmæli að við megum fara inn í dómaraklefa eftir leiki og ræða við dómarann, ég gerði það. Þar ítrekaði ég mitt mál og var mjög ósáttur og svekktur yfir því að dómgreindarleysi þeirra væri svona mikið. Þeir tóku vafaatriði og færðu það inn í teig, þeir bjuggu til atriði," sagði Magnús Gylfason.

Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://fotbolti.net/fullStory.php?id=126434#ixzz1v3KKNU4F

16.05.2012 12:17

Ótitlað

Guðbjörg segist vongóð um að ekki þurfi að selja nýtt skip

Eigandi Moggans vonar að ekki verði af boðuðum breytingum stjórnvalda í sjávarútvegi
Guðbjörg Matthíasdóttir, eigandi Morgunblaðsins og Ísfélags Vestmannaeyja.

Guðbjörg Matthíasdóttir, eigandi Morgunblaðsins og Ísfélags Vestmannaeyja.

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:36 > 16. maí 2012

Á forsíðu Morgunblaðsins er greint frá því að Ísfélag Vestmannaeyja gæti þurft að selja fjögurra milljarða króna skipið Heimaey, sem kom til Vestmannaeyja í gær, ef frumvörp um stjórn fiskveiða verða samþykkt.

"Sá skuggi hvíldi þó yfir á þessum bjarta og fallega degi að boðaðar aðgerðir stjórnvalda í sjávarútvegsmálum geta kippt grundvellinum undan útgerði skipsins þannig að nauðsynlegt verði að selja þetta glæsilega skip úr landi," segir í frétt Morgunblaðsins, undir fyrirsögninni "Nýjasta skipið selt úr landi", en eigandi þess er Guðbjörg Matthíasdóttir en hún er einmitt aðaleigandi Ísfélags Vestmannaeyja sem lét byggja Heimaey.

Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Ísfélags Vestmannaeyja, segir við Morgunblaðið að það hafi ekki verið áhættulaust að ákveða að nýtt skip en hann sagði að nú standi Ísfélagið í annarri baráttu. "Sem virðist ætla að verða tvísýnni og erfiðari og þar er baráttan við stjórnvöld," segir Gunnlaugur við Morgunblaðið.

"Hver getur trúað því að fólk sem nýtur einskis trausts og á að líkindum aðeins nokkra mánuði eftir á valdastóli skuli ætla að svipta fjölda fólks lífsviðurværi sínu og gera milljarða fjárfestingar verðlausar. Fjárfestingar sem ráðist var í á grundvelli laga og reglna sem þetta sama fólk tók ákvörðun um fyrir 20 árum," segir Gunnlaugur við Morgunblaðið.

Guðbjörg Matthíasdóttir segist að lokum við Morgunblaðið vera vongóð um að ekki þurfi að selja skipið. "Við skulum vona að skipið fái verkefni við hæfi svo til þess komi ekki," segir Guðbjörg aðspurð hvort skipið verði selt úr landi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

http://www.dv.is/frettir/2012/5/16/gudbjorg-segist-vongod-um-ad-ekki-thurfi-ad-selja-nytt-skip/

16.05.2012 08:27

Ótitlað

 
Árni á augljólega ættir að rekja til álfa.

Íslenskir álfar hafa sýnt áhuga á að flytja alþingismanninn Árna Johnsen upp á meginlandið og finna honum stað fyrir framan samskiptamiðsöð álfa og huldufólks á suðurlandi.

Ekki er ljóst hvað álfunum gengur til. Sumir segja þá vilja rækta frændskapinn við Árna, en hann er sem kunnugt er af álfakyni - eins og sjúklegur áhugi hans á grjóti ber vitni um. Aðrir telja að eingöngu sé um svokallað PR-stönt að ræða af hálfu álfanna.

Líklegt er að alþingi taki afstöðu til málsins í vikunni og þá jafnframt hvort gengið verður að kröfum álfannna um að stoppa Árna upp.



http://baggalutur.is/frettir.php?id=5597

16.05.2012 08:18

Ótitlað

mið 16.maí 2012 06:00 Hafliði Breiðfjörð, Twitter: @haflidib
Myndaveisla: Fyrsti sigur KR var gegn ÍBV í gær
Íslands- og bikarmeistarar KR unnu í gærkvöldi fyrsta sigur sinn á Íslandsmótinu þegar liðið vann 3-2 sigur á ÍBV á KR-velli.

Torfi Jóhannsson leit við og náði þessum myndum.

Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://fotbolti.net/fullStory.php?id=126415#ixzz1v1Dt8xPu

16.05.2012 08:16

Ótitlað

Heimaey sigldi í höfn í Vestmannaeyjum í gær

Fréttablaðið Innlent 16. maí 2012 05:30
Heimaey VE 1 Skipið er allt hið glæsilegasta og er aðbúnaður áhafnar um borð eins og best verður á kosið.fréttablaðið/Óskar
Heimaey VE 1 Skipið er allt hið glæsilegasta og er aðbúnaður áhafnar um borð eins og best verður á kosið.fréttablaðið/Óskar
Heimaey VE 1, glæsilegt uppsjávarveiðiskip Ísfélagsins í Vestmanneyjum, kom til heimahafnar í gær. Skipið hefur verið í smíðum í fimm ár, en smíði þess tafðist vegna náttúruhamfara í smíðalandinu Síle. Fjölmenni safnaðist saman í Friðarhöfn í Eyjum til að taka á móti hinu glæsilega skipi og áhöfn þess en það var Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleigandi Ísfélagsins, sem tók á móti landfestum þegar til hafnar var komið.

Ólafur Einarsson, skipstjóri á Heimaey, segir skipið vera sjóborg, eins og komið hafi í ljós í erfiðu veðri og sjólagi á heimleiðinni. "Við fengum allar stærðir og gerðir af veðri, en þetta gekk mjög vel."

Fyrstu verkefni Heimaeyjar eru makrílveiðar sumarsins en áður en að þeim kemur þarf að prófa skipið og fá allt til að virka áður en haldið er til veiða. Hvenær það verður liggur ekki fyrir.

Ólafur segir að öll aðstaða um borð sé til fyrirmyndar og tilhlökkunarefni fyrir áhöfn að halda til veiða á nýju glæsilegu skipi.

Skipið er af nýrri kynslóð uppsjávarskipa, rúmlega 71 metra langt og 14 metra breitt. Burðageta þess er um tvö þúsund tonn í tíu kælitönkum. - shá

16.05.2012 08:14

Ótitlað

16.05.2012 04:17

Ótitlað

Þriðjudaginn 15. maí kl. 22.40
Pepsídeild karla:

Magnús dómari gerði vel fyrir KR

- Dæmdi tvær vafasamar víti á ÍBV og eina klárlega ranga - KR nýtti sínar spyrnur og unnu 3:2

Magnús dómari gerði vel fyrir KR
Magnús dómari gerði vel fyrir KRMagnús dómari gerði vel fyrir KRMagnús dómari gerði vel fyrir KRMagnús dómari gerði vel fyrir KRMagnús dómari gerði vel fyrir KR
Myndir: Reynir Pálsson.
Eyjamenn máttu ganga svekktir af velli eftir 3:2 tap gegn KR.  Magnús Þórisson dæmdi þrjár vítaspyrnur á ÍBV, tvær þeirra voru í besta falli vafasamar og sú þriðja var ekkert annað en rangur dómur.  Eyjamenn lentu 2:0 undir en náðu að jafna í seinni hálfleik.  KR-ingar fengu þriðju vítaspyrnuna í síðari hálfleik og í uppbótartíma fengu Eyjamenn loksins víti, sem var líklega eini rétti vítaspyrnudómurinn í leiknum.  Matt Garner klikkaði hins vegar á ögurstundu og KR-ingar fögnuðu ósanngjörnum sigri.
Meira


Þriðjudaginn 15. maí kl. 17.38
Fótbolti.net

ÍBV fær ungan miðjumann frá Millwall

ÍBV fær ungan miðjumann frá Millwall
Nítján ára enskur miðjumaður, Jake Gallagher, fær leikheimild með ÍBV frá og með morgundeginum. Hann verður því löglegur með Eyjaliðinu í fjórðu umferð en getur ekki leikið gegn KR í kvöld.  Gallagher kemur frá Millwall þar sem hann var fyrirliði unglingaliðsins. Samkvæmt heimasíðu Millwall er um að ræða baráttuglaðan leikmann sem er góður skotmaður og hefur skorað reglulega fyrir yngri lið félagsins.
Meira
Þriðjudaginn 15. maí kl. 14.22

Heimaey VE 1 komin til heimahafnar

- Myndir og myndband fylgir fréttinni

Heimaey VE 1 komin til heimahafnar
Heimaey VE 1 sigldi inn til heimahafnar í hádeginu í dag, þriðjudaginn 15. maí.  Mikill mannfjöldi safnaðist saman á bryggjunni í Friðarhöfn til að taka á móti hinu glæsilega skipi Ísfélagsins en skipstjóri er Ólafur Einarsson.  Það var Guðbjörg Matthíasdóttir, stjórnarmaður og aðaleigandi Ísfélagsins sem tók við spottanum og batt skipið við bryggju.
Meira


Þriðjudaginn 15. maí kl. 10.00

Fyrsta myndin af Heimaey VE í íslenskri lögsögu

Fyrsta myndin af Heimaey VE í íslenskri lögsögu
Heimaey VE 1, nýtt og glæsilegt uppsjávarskip Ísfélagsins bíður nú þess að sigla inn í heimahöfn í fyrsta sinn.  Áhöfnin á TF-SIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar flaug yfir skipið í gær og náði þessari ágætu mynd af skipinu á siglingu í átt að Vestmannaeyjum og er það klárlega fyrsta myndin af skipinu í íslenskri lögsögu.
Meira
Þriðjudaginn 15. maí kl. 08.08
Mbl.is:

Hugsa bara um að vinna titil

Hugsa bara um að vinna titil
"Ég hef ekkert heyrt frá forráðamönnum Potsdam eða Kristianstad og veit ekki til þess að neitt sé í gangi. Fréttirnar um að ég sé að fara til Svíþjóðar eru ekki á neinum rökum reistar. Ég er samningsbundin Potsdam til 2013 og nú hugsa ég ekki um neitt annað en að taka þátt í að tryggja liðinu þýska meistaratitilinn í síðustu tveimur umferðunum," sagði Margrét Lára Viðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, við Morgunblaðið í gær.
Meira

15. maí kl.12:10 | eyjar.net

Heimaey komin upp að Vestmannaeyjum

Nýtt skip Ísfélagsins, Heimaey VE-1 er komið inn í íslenska lögsögu og  að Vestmannaeyjum en skipið var smíðað í Síle. Tekið verður á móti skipinu í Vestmannaeyjarhöfn um kl. 12 í dag og þá gefst gestum tækifæri á að skoða skipið.
 

Fréttir

15. maí kl.08:25 | mbl.is

Álfar flytja til Eyja

16.05.2012 02:17

Ótitlað



22:32 | 15.05 2012 | | Alexander Freyr Einarsson | alexander@433.is | @alexander_freyr

Kjartan Henry: Var farinn að gráta fyrir aftan varamannaskýlið

Kjartan Henry Finnbogason skoraði fyrstu þrennu sumarsins í 3-2 sigri KR gegn ÍBV í Pepsi deildinni í kvöld.

Öll mörk Kjartans komu úr víti og var hann að vonum ánægður með fyrsta sigur Íslandsmeistaranna á tímabilinu.

"Ég er ánægður með þetta og ég er sérstaklega ánægður með að við fengum þrjú stig. Ég var farinn að gráta þarna fyrir aftan varamannaskýlið þegar hann dæmdi vítið. En Hannes bjargaði okkur, ekki í fyrsta skiptið," sagði Kjartan Henry eftir leikinn.

Viðtalið við Kjartan Henry má sjá í heild sinni í myndbandinu hér að ofan.

Smellið hér til að lesa textalýsingu

Einkunnir

KR

  • Hannes Þór Halldórsson
    8
  • Grétar Sigfinnur Sigurðsson
    5
  • Guðmundur Reynir Gunnarsson
    6
  • Haukur Heiðar Hauksson
    6
  • Rhys Weston
    4
  • Bjarni Guðjónsson
    5
  • Baldur Sigurðsson
    6
  • Kjartan Henry Finnbogason '81
    8
  • Óskar Örn Hauksson
    7
  • Dofri Snorrason '81
    6
  • Viktor Bjarki Arnarsson '46
    5
  • Varamenn

    • Egill Jónsson '46
      5
    • Gunnar Þór Gunnarsson
    • Þorsteinn Már Ragnarsson '81
    • Emil Atlason '81
    • Magnús Már Lúðvíksson
    • Fjalar Þorgeirsson
    • Atli Sigurjónsson

ÍBV

  • Abel Dhaira
    6
  • Brynjar Gauti Guðjónsson
    5
  • Matt Nicholas Paul Garner
    5
  • Guðmundur Þórarinsson '32
    6
  • Tonny Mawejje
    6
  • Arnór Eyvar Ólafsson
    5
  • Christian Steen Olsen
    6
  • George Baldock
    5
  • Rasmus Steenberg Christiansen
    5
  • Víðir Þorvarðarson '83
    5
  • Ian David Jeffs
    6

Varamenn

  • Yngvi Magnús Borgþórsson
  • Aaron Robert Spear '32
    6
  • Ragnar Leósson
  • Gauti Þorvarðarson
  • Eyþór Helgi Birgisson '83
  • Guðjón Orri Sigurjónsson
  • Bjarki Axelsson
Tracker Pixel for Entry

16.05.2012 02:16

Ótitlað

22:45 | 15.05 2012 | | Alexander Freyr Einarsson | alexander@433.is | @alexander_freyr

Umfjöllun: Hel-víti fyrir Eyjamenn

KR 3 - 2 ÍBV
1-0 Kjartan Henry Finnbogason ('35, víti)
2-0 Kjartan Henry Finnbogason ('45, víti)
2-1 Aaron Spear ('47)
2-2 Tonny Mawejje ('67)
3-2 Kjartan Henry Finnbogason ('77, víti)

KR vann í kvöld dramatískan 3-2 sigur gegn ÍBV þegar liðin mættust í sjónvarpsleik Pepsi deildar karla klukkan 20:00. Öll mörk KR-inga komu úr vítaspyrnum en að sama skapi klikkaði Matt Garner á vítaspyrnu á lokamínútu leiksins og tókst því ekki að jafna metin fyrir ÍBV.

Leikurinn byrjaði nokkuð rólega, en Tony Mawejje átti þó skot rétt framjá á 8. mínútu. Það voru KR-ingar sem skoruðu fyrsta markið úr vítaspyrnu, en hana fékk Kjartan Henry Finnbogason eftir að hafa verið felldur á leið út úr teignum.

Kjartan Henry steig sjálfur á punktinn og skoraði af gríðarlegu öryggi i vinstra hornið. Abel Dhaira í markinu valdi rétt horn en vítaspyrna Kjartans var gersamlega óverjandi.

KR-ingar fengu svo aftur víti á lokamínútu fyrri hálfleiks þegar boltinn fór í höndina á Brynjari Gauta Guðjónssyni. Það var aðstoðardómarinn sem dæmdi þetta víti en samkvæmt sjónvarpsupptökum var boltinn vel fyrir utan teiginn og átti því einungis að dæma aukaspyrnu.

Aftur steig Kjartan Henry á punktinn og skoraði af ekki síðra öryggi en í fyrra vítinu. Spyrna hans var í raun alveg eins og sú fyrri en aftur var hún óverjandi.

Staðan var 2-0 fyrir KR-ingum í leikhlé og var útlitið ansi gott fyrir þá.

Seinni hálfleikurinn byrjaði þó alls ekki vel fyrir heimamenn því Aaron Spear minnkaði muninn á fyrstu mínútunum. Varnarmenn KR gerðu sig þá seka um klaufaleg mistök og missti boltann á klaufalegum stað. Christian Olsen náði boltanum og kom með frábært skot sem Hannes Þór gerði glæsilega að verja. Boltinn fór þó ekki lengra en til Spear sem skoraði af öryggi.

KR-ingar voru alveg úti að aka í seinni hálfleiknum og var það í raun bara verðskuldað þegar Tonny Mawejje jafnaði metin með hörkuskoti. Christian Olsen geystist upp kantinn og boltinn barst til Úganda-mannsins sem þrumaði boltanum í netið.

Það leið þó ekki á löngu áður en KR-ingar fengu dæmda sína þriðju vítaspyrnu og var það eftir að brotið var á Óskari Erni inni í teignum. Kjartan Henry steig að sjálfsögðu á punktinn en í þetta skiptið skaut hann í hægra hornið og sendi Abel í vitlaust horn. Staðan því orðin 3-2 KR-ingum í vil.

Heimamenn lögðust aðeins til baka eftir markið og ætluðu greinilega að halda forskotinu. Þau áform virtust þó ætla að verða að engu í uppbótartíma þegar Rhys Weston braut á Brynjari Gauta Guðjónssyni og vítaspyrna var dæmd.

Á punktinn steig Matt Garner, en viti menn, Hannes Þór Halldórsson varði og tryggði KR-ingum fyrsta sigur sinn í sumar.

KR er nú í 6. sæti deildarinnar með 4 stig en ÍBV er í því næst neðsta með einungis eitt stig.



Smellið hér til að lesa textalýsingu

Einkunnir

KR

  • Hannes Þór Halldórsson
    8
  • Grétar Sigfinnur Sigurðsson
    5
  • Guðmundur Reynir Gunnarsson
    6
  • Haukur Heiðar Hauksson
    6
  • Rhys Weston
    4
  • Bjarni Guðjónsson
    5
  • Baldur Sigurðsson
    6
  • Kjartan Henry Finnbogason '81
    8
  • Óskar Örn Hauksson
    7
  • Dofri Snorrason '81
    6
  • Viktor Bjarki Arnarsson '46
    5
  • Varamenn

    • Egill Jónsson '46
      5
    • Gunnar Þór Gunnarsson
    • Þorsteinn Már Ragnarsson '81
    • Emil Atlason '81
    • Magnús Már Lúðvíksson
    • Fjalar Þorgeirsson
    • Atli Sigurjónsson

ÍBV

  • Abel Dhaira
    6
  • Brynjar Gauti Guðjónsson
    5
  • Matt Nicholas Paul Garner
    5
  • Guðmundur Þórarinsson '32
    6
  • Tonny Mawejje
    6
  • Arnór Eyvar Ólafsson
    5
  • Christian Steen Olsen
    6
  • George Baldock
    5
  • Rasmus Steenberg Christiansen
    5
  • Víðir Þorvarðarson '83
    5
  • Ian David Jeffs
    6

Varamenn

  • Yngvi Magnús Borgþórsson
  • Aaron Robert Spear '32
    6
  • Ragnar Leósson
  • Gauti Þorvarðarson
  • Eyþór Helgi Birgisson '83
  • Guðjón Orri Sigurjónsson
  • Bjarki Axelsson
Tracker Pixel for Entry
Flettingar í dag: 128
Gestir í dag: 55
Flettingar í gær: 501
Gestir í gær: 100
Samtals flettingar: 215680
Samtals gestir: 38533
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 07:59:33

Veður í Vestmannaeyjum/Stórhöfða

Athugið

Tilgangur með þessa síðu er að halda utan um allar þær fréttir sem eru skrifaðar um körfuknattleikfélag ÍBV. Enn þessi síða hjá 123.is býður uppá miklu meira möguleika á að flétta fréttum aftur í tíman, og eða að finna einhvað  ákveðið efni. Sem ekki er hægt til dæmis hjá ibv.is/karfa, eyjafrettir.is og eyjar.net..............


3. maí 2009: Ég hef ákveðið að breyta síðunni aðeins. Er að hugsa um að bæta við aðeins meira við enn bara Eyjakörfuboltanum við.

Vestmannaeyjar

Nafn:

Vestmannaeyjar

MSN netfang:

palmi_freyr@hotmail.com

Heimilisfang:

Heimaey

Staðsetning:

Vestmannaeyjar

Uppáhalds manneskjur:

..

Uppáhalds matur:

Hollur og góður matur

Tenglar